top of page
Kórstjóri er Símon H. Ívarsson,
sími 566-7634 og 895-7634,
netfang simoni@simnet.is .
 
Símon hóf gítarnám við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar hjá Gunnari H. Jónssyni. Vorið 1975 lauk hann fullnaðarprófi frá skólanum, en þá um haustið hóf hann nám við Hochschule für Musik und darstellende Kunst í Vínarborg hjá prof. Karl Scheit. Þaðan lauk hann einleikaraprófi vorið 1980. Símon starfaði síðan sem gítarkennari við Tónlistarskóla í Luzern í Sviss, en flutti heim til Íslands haustið 1981 og kennir nú við Listaskóla Mosfellsbæjar og Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar á gítar og kammertónlist. 
bottom of page